Flugi mínu hefur verið breytt/aflýst, hvaða kostir eru í boði?

Annað flug: Almennt séð býður flugfélagið annan valkost fyrir það/þau flug sem málið varðar. Það ræðst af eðli breytingar á áætlun hvort þú færð beiðni um að staðfesta boð um nýja flugið. Þegar ferðaáætlunin hefur verið uppfærð sendum við þér uppfært afrit á netfangið sem þú notaðir við bókunina.

Ef nýja flugið hentar þér ekki getum við aðstoðað þig við að finna nýtt. Vinsamlega athugaðu að við gætum innheimt gjald fyrir þessa þjónustu.

Þegar ferðaáætlunin hefur verið uppfærð sendum við þér upplýsingar um nýja flugið á netfangið sem þú notaðir við bókunina.

Endurgreiðsla: Full endurgreiðsla á viðkomandi flugi/flugum gæti verið í boði en það ræðst af breytingunni og reglum flugfélagsins.

Vinsamlegast hafðu samband við okkur til að staðfesta hvort endurgreiðsla sé möguleg og við biðjum um hana frá flugfélaginu fyrir þína hönd. Þú getur líka haft samband beint við flugfélagið til að biðja um endurgreiðslu.

Ef flugfélagið samþykkir að endurgreiða þér leggjum við upphæðina inn á upprunalega greiðsluleið þegar búið er að vinna úr málinu.

Hafðu í huga að sum flugfélög bjóða endurgreiðslu í formi opins miða eða inneignarmiða. Þetta þýðir að þú færð inneign sem jafngildir andvirði upprunalega miðans þíns, sem þú getur notað til að bóka nýja ferð eða geymt til notkunar síðar meir.

Athugið að ekki er víst að ákveðin viðbótarþjónusta sé endurgreidd eða fáist framseld.

Bætur: Samkvæmt evrópskum lögum gætir þú átt rétt á bótum ef þú ferðast inn eða út úr ESB, eða með flugfélagi frá ESB-ríki.

Almennt séð greiða flugfélög skaðabætur eins og reglur þeirra heimila. Hafðu vinsamlegast samband við flugfélagið til að fá frekari upplýsingar um réttindi þín.