Verð ég að hafa vegabréfsáritun til að ferðast?
Þú þarft eingöngu að framvísa opinberum persónuskilríkjum til að ferðast innan Schengen-svæðisins ef þú ert ríkisborgari aðildarlands Schengen (nafnið á skilríkjunum verður að vera skrifað með latínuletri). Hafðu í huga að þrátt fyrir að persónuskilríki nægi til er algengara að fólk framvísi vegabréfi við ferðalög.
Við ferðalög utan Schengen-svæðisins þarftu líklega að framvísa vegabréfi, flugmiða og vegabréfsáritun. Þú ættir að hafa samband við sendiráðið í landinu sem þú ert að heimsækja til að fá upplýsingar um hvaða ferðaskjölum þú þarft á að halda.
Þú getur fengið upplýsingar hjá okkur varðandi kröfur um vegabréfsáritun (áritun til gegnumferðar) þegar ferðast er til/í gegnum tiltekið land en hafðu í huga að ferðalangurinn ber alfarið ábyrgð á því að meta hvaða skjöl eru áskilin.