Hvers vegna hef ég ekki enn fengið endurgreitt?
Endurgreitt verður inn á greiðslumátann sem þú notaðir við bókunina ef þú átt rétt á endurgreiðslu. Hins vegar gætu tilraunir til að endurgreiða þér upprunalegu greiðsluna ekki gengið eftir. Hér að neðan eru tilgreindar algengar ástæður fyrir því að ekki tekst að ganga frá endurgreiðslu:
- Takmarkanir sem greiðsluveitendur hafa sett okkur vegna þess að of langur tími er um liðinn frá upprunalegum færsludegi
- Bankareikningurinn er ekki lengur virkur (hugsanlega reikningurinn sem er tengdur kortinu þínu)
- Tæknileg vandamál eða takmarkanir er tengjast völdum greiðslumáta
Í slíkum tilfellum munum við líklega senda þér tilkynningu í tölvupósti og biðja þig um frekari bankaupplýsingar. Síðan munum við biðja þig um að ljúka staðfestingarferli til að staðfesta að þú sért reikningseigandinn.