Hvað kostar að umbóka flug?

Ef flugfélagið leyfir umbókun innheimtir það gjald/þóknun. Upphæðin er breytileg frá einum miða til annars og gjaldið gæti hækkað, sé óskað eftir umbókun nálægt eða eftir brottför flugsins. Til viðbótar við umbókunargjaldið okkar gætir þú þurft að borga mismun á fargjaldi og viðbótargjöld.

Stundum kostar minna að kaupa nýjan miða en að umbóka þann fyrri. Þetta hefur með framboð og mismun á tegundum fargjalda að gera.