Hvað á ég að gera að innritun lokinni?

Eftir að þú hefur innritað þig skaltu ganga úr skugga um að þú hafir fengið brottfararspjöldin. Ef þú nýtir þér netinnritun skaltu prenta brottfararspjöldin eða vista þau í farsímanum áður en þú ferð á flugvöllinn þar sem sum flugfélög gætu tekið gjald fyrir þessa þjónustu þar.

Ef þú tekur með farangur um borð skaltu vinsamlegast hafa í huga að hvert flugfélag hefur sínar reglur um stærð og þyngd handfarangurs auk lista yfir bannaða hluti. Almennar upplýsingar um reglur um handfarangur má finna á 'Mínar bókanir'undir flipanum ,Innritun‘ og sértækar reglur á vefsetri flugfélagsins.

Sé innritaður farangur innifalinn í miðanum getur þú samt innritað þig á netinu en þú þarft að skila farangrinum inn á tilgreindu svæði flugvallarins. Það ræðst af flugvelli eða flugfélagi hvort þú þarft að annast þetta sjálf/ur eða hvort flugfélagið veitir þjónustuna við innritunarborð.